Engiferkryddað rauðrófusalat

Magn Hráefni
3 meðalstórar rauðrófur
2 stk.lime
3appelsínur
1/2 bollivalhnetukjarnar
2 vorlaukar, saxaðir (má sleppa)
3 tsk.hunang
1/4 bolliolía
1 tsk. rifin engiferrót
Magn Hráefni
3 meðalstórar rauðrófur
2 stk.lime
3appelsínur
1/2 bollivalhnetukjarnar
2 vorlaukar, saxaðir (má sleppa)
3 tsk.hunang
1/4 bolliolía
1 tsk. rifin engiferrót
Aðferð
1 Skref
Sjóðið rauðrófurnar í 40 mín. eða þar til þær eru gegnumsoðnar, kælið þær og flysjið.
2 Skref
Skerið rauðrófurnar í mjóa strimla, flysjið eina appelsínu og eitt lime með grænmetisflysjara og skerið börkinn í örfína strimla.
3 Skref
Setjið strimlana í sjóðheitt vatn í smástund og sigtið svo vatnið frá.
4 Skref
Flysjið afganginn af appelsínunum og skerið frá allan hvíta hlutann af berkinum.
5 Skref
Skerið appelsínurnar í báta og geymið safann sem myndast.
6 Skref
Leggið rauðrófustrimlana í hring á fat og appelsínubátana í miðjuna.
7 Skref
Dreifið valhnetunum, vorlauknum og appelsínustrimlunum yfir salatið.
8 Skref
Pressið safann úr lime-ávöxtunum og blandið saman við appelsínusafann, bætið hunanginu og olíunni saman við ásamt engiferrótinni.
9 Skref
Hrærið öllu vel saman og dreypið yfir salatið.