Sykurgljáðar karrýgulrætur

Uppskrift

Fyrir 5-6

Hráefni

  • 500 g gulrætur, flysjaðar og skornar í 1 cm sneiðar
  • 1 dl púðursykur
  • 1 msk. karrý
  • 100 g heslihnetur eða möndluflögur
  • smjör til steikingar
  • salt og pipar

Aðferð

1. Snöggsjóðið gulrætur, hellið vatninu af og geymið í potti.
2. Hitið smjör á pönnu og setjið karrý, sykur og hnetu-/möndluflögur út í.
3. Látið sykurinn bráðna alveg og setjið gulræturnar út í, ásamt salti og pipar eftir smekk.