Spergilkál og blómkál bakað í ofni

Uppskrift

Fyrir 5-6

Hráefni

  • 500 g spergilkál
  • 1 blómkálshöfuð, meðalstórt
     
  • 100 g smjör
  • 2 laukar, smátt saxaðir
  • 2 msk. hveiti
  • 2 msk. púðursykur
  • 1 tsk. sinnepsduft
  • 1 1/2 bolli mjólk
  • 1 bolli sýrður rjómi
  • 2 msk. söxuð steinselja

Aðferð

1. Skerið kálið í litla vendi og sjóðið í potti í léttsöltu vatni eða í örbylgjuofni án vatns þar til það fer að mýkjast. Ekki ofsjóða, þá fer allt í mauk.
2. Látið vatnið renna vel af og haldið heitu á meðan sósan er útbúin.

3. Bræðið smjörið í potti, setjið laukinn út í og hrærið þar til laukurinn er orðinn mjúkur.
4. Stráið hveitinu yfir ásamt púðursykrinum og sinnepsduftinu. Látið krauma í 1 mín.
5. Hellið mjólkinni og sýrða rjómanum smátt og smátt út í og hrærið vel á milli eins og þegar búinn er til jafningur.
6. Hrærið vel og látið sósuna krauma í 2-3 mín.
7. Hellið sósunni yfir grænmetið og stráið steinseljunni yfir.
8. Berið fram heitt.