Sætir kartöflu- og selleríteningar

Uppskrift

 Fyrir 4-6

Hráefni

  • 500 g skrældar sætar kartöflur
  • 2 stilkar sellerí
  • 2 msk. timían
  • salt og pipar eftir smekk
  • 100 g smjör

Aðferð

1. Skerið kartöflurnar í teninga, u.þ.b. 1 cm á kant.
2. Skerið selleríið í álíka stóra teninga.
3. Steikið allt upp úr smjörinu og kryddið með salti, pipar og timían.
4. Veltið þessu á pönnunni í smástund, setjið í ofnskúffu og bakið í 15 mín. við 180°C.