Kjúklingasamloka með maísmauki

Uppskrift

Fyrir 4

Hráefni

  • 400 g afgangar af kalkúnakjöti, skornir í sneiðar
  • 200 g afgangar af kartöflum, grænmeti og fyllingu
  • 2 tómatar, skornir í sneiðar
  • 1 rauðlaukur, skorinn í sneiðar
  • 1/2 poki blandað salat
  • 4 langlokubrauð eða annað gott brauð
     

Maísmauk
200 g maískorn, frosið eða niðursoðið
1/2 laukur, smátt saxaður
2 1/2 dl rjómi
salt og nýmalaður pipar

 

 

Aðferð

1. Setjið allt hráefnið í maukið saman í pott og sjóðið við vægan hita í 5 mín.
2. Hellið þá öllu úr pottinum í matvinnsluvél og maukið vel.
3. Skerið brauðið til helminga eftir endilöngu og smyrjið báða helmingana með maísmauki.
4. Raðið svo öllu sem er í uppskriftinni á brauðið.