Kalkúnapottréttur Úllala með núðlum

Uppskrift

Fyrir 4

Hráefni

2 msk. olía
6-800 g kalkúnastrimlar eða kalkúnasnitsel, skorið í teninga
salt og nýmalaður pipar
1 laukur, skorinn í bita
1 paprika, skorin í bita
10 snjóbaunir, skornar í bita
2 gulrætur, skornar í bita
2 dl Úllalasósa (sjá að neðan)
600 g soðnar núðlur eða pasta
2 msk. steinselja, smátt söxuð

Úllalasósa
5 cm engiferrót, skræld
1/2-1 chili-aldin, fræhreinsað
3-4 hvítlauksgeirar
1 tsk. kóríanderfræ, má sleppa
1 tsk. rósapipar, má sleppa
1 tsk. karrí, milt
1 tsk. paprikuduft
2 msk. hunang
2 msk. balsamikedik
3 msk. ostrusósa
2 msk. tómatsósa
2 msk. sætt sinnep
3 msk. sérrí, má sleppa
2-3 dl olía

Aðferð

1. Hitið olíu í potti og steikið kalkúnabitana við góðan hita í 3-4 mín.
2. Bætið þá lauknum og grænmetinu í pottinn og steikið í 4 mín. í viðbót. Hrærið vel í með sleif á meðan.
3. Bætið þá Úllalasósunni í pottinn og hleypið upp að suðumarki.
4. Berið fram með núðlum og stráið steinselju yfir.
5. Í stað kalkúnastrimla eða kalkúnasnitsels má nota afganga af kalkún.

Sósan
1. Setjið allt nema olíu í matvinnsluvél og maukið vel.
2. Hellið þá olíunni saman við í mjórri bunu og látið vélina ganga á meðan.