Uppskrift
Fyrir 3–4
Hráefni
- 1 meðalstór kalkúnabringa
- 16 sneiðar hráskinka
- 1 Brie-ostur
- handfylli af ferskri saxaðri basiliku
- salt og pipar eftir smekk
Aðferð
1. Stillið ofninn á 150°C og hitið einnig pönnu með olíu á, kryddið með salti og pipar eftir smekk, brúnið kalkúnabringuna í olíu á báðum hliðum í 2-3 mín. á hvorri hlið og takið af pönnunni.
2. Skerið Brie-ostinn í þunnar sneiðar og leggið ofan á bringuna. Því næst er basiliku dreift jafnt yfir og síðan er skinkunni vafið þétt og fallega utan um bringuna og reynt eftir fremsta megni að loka ostinn inni.
3. Setjið í eldfast mót og inn í ofn, bakið í 30-40 mín. eða þar til kjarnhitinn hefur náð 67°C.
4. Takið bringuna út og látið hvíla undir viskustykki í 7-10 mín.
5. Skerið í þunnar sneiðar og berið fram með grilluðum maís.
- Prenta
- |
- Senda í pósti
- |
- Deila