Uppskrift
Fyrir 4–6
Hráefni
Bökudeig
150 g kalt smjör
200 g hveiti
2 msk. vatn
Fylling
ca 400 g kalkúnakjöt í teningum (afgangar)
1 pk. beikon (ca 150 g), smátt brytjað
1 laukur, fínsaxaður
3 dl mjólk
5 egg
1/2 pk. frosið spínat
1 tsk. salt
1/2 tsk. hvítur pipar
1 dl rifinn ostur
Aðferð
Deigið
1. Allt hnoðað saman og klætt í smurt eldfast mót.
2. Bakað í 15 mín. við 200°C.
Fyllingin
1. Steikið lauk og beikon á pönnu, setjið kalkúnakjöt út í og hitið létt.
2. Setjið í botninn á bökuskelinni.
3. Pískið saman egg, mjólk, salt, pipar og þítt spínat.
4. Hellið öllu yfir kjötið, rifinn ostur settur yfir.
5. Bakið við 200°C í 25 mín. eða þar til bakan er orðin gullinbrún.
6. Berið fram með góðu salati og/eða brauði.
- Prenta
- |
- Senda í pósti
- |
- Deila