Jólafylling Hörpu

Uppskrift

Hráefni

Kryddblanda
4 tsk. salt
1 1/2 tsk. pipar
2 tsk. sellerísalt
2 tsk. timian

Fylling
1 skorpulaust franskbrauð
smjör
3 1/2 dl saxaðar sveskjur
4 dl söxuð epli
2 dl rúsínur
1 hálfdós ananas í sneiðum eða bitum, ásamt safa
 

Aðferð

1. Blandið kryddinu saman.
2. Nuddið hluta af blöndunni á kalkúninn, notið afganginn í fyllinguna.
3. Skerið franskbrauðið í teninga og ristið þá í smjöri á pönnu.
4. Brytjið ananasinn og blandið honum saman við brauðteningana ásamt safanum.
5. Blandið öllu öðru saman við ásamt kryddblöndunni.
6. Setjið fyllinguna í fuglinn og saumið fyrir eða lokið með kjötnál.