Hvítvínssósa með rósmarín og hvítlauk

Uppskrift

Fyrir 5–6

Hráefni

  • 2 msk. olía
  • 2 laukar, smátt saxaðir
  • 2-4 hvítlauksgeirar, pressaðir
  • 1 msk. rósmarínnálar
  • 3 dl hvítvín
  • 4 dl kalkúnasoð
  • 1 msk. kalkúnakraftur
  • 2 dl rjómi
  • sósujafnari
  • salt og nýmalaður pipar

Aðferð

1. Hitið olíu í potti og látið lauk, hvítlauk og rósmarín krauma í 2 mín.
2. Hellið hvítvíni í pottinn og sjóðið niður í síróp.
3. Bætið kalkúnasoði, kalkúnakrafti og rjóma saman við og þykkið með sósujafnara.
4. Smakkið til með salti og pipar.