Hunangsgljáð kalkúnabringa með sesamfræjum

Uppskrift

 Fyrir 4

Hráefni

1 kg kalkúnabringa
2 msk. smjör
1 tsk. salt
nýmalaður pipar
2 dl hvítvín
1 dl kjúklingasoð (vatn + teningar)
2 msk. sesamfræ

Hunangsglassúr
1/2 dl fljótandi hunang
1/2 dl sojasósa
1 hvítlauksrif

Appelsínusósa
2 skalottuaukar
1 msk. smjör
2 dl vökvi (soð + hvítvín)
1 tsk. hakkaður chili-pipar
safi úr tveimur appelsínum (2 dl)
2 dl sýrður rjómi
smávegis af rifnum appelsínuberki
1/2 tsk. salt
nýmalaður pipar

Aðferð

1. Kryddið kalkúnabringuna, steikið á báðum hliðum í smjöri og  leggið því næst í eldfast mót.
2. Hellið víni og soði yfir og steikið í ofni við 150°C í 50-60 mín., eða þar til kjarnhiti er 72°C.
3. Takið bringuna úr soðinu.
4. Hrærið saman það sem á að fara í glassúrinn og penslið bringuna vel með honum.
5. Hækkið hitann á ofninum í 225°C og bakið bringuna áfram í 5-10 mín.
6. Dreifið sesamfræjum yfir bringuna þegar hún er tekin úr ofninum og látið hana hvíla í 15 mín. áður en hún er skorin niður.
7. Hakkið laukinn smátt og steikið í smjöri. Bætið chili-pipar, hvítvíni og soði og appelsínusafa saman við. Látið malla í 10 mínútur.
8. Bætið þá sýrðum rjóma saman við.
9. Að lokum er appelsínubörkur settur saman við og bragðbætt með salti og pipar.
10. Skerið bringuna í fallegar sneiðar og berið fram með kartöflum, salati og appelsínusósu.