Heilreykt kalkúnabringa með appelsínusósu

Uppskrift

Fyrir 6–8

Hráefni

heilreykt kalkúnabringa með beini (2-3 kg)
2 dl hvítvín eða mysa
5 dl vatn
1/2 tsk. kóríanderfræ
1/2 tsk. rósmarín
1 msk. appelsínumarmelaði
1-2 msk. appelsínuþykkni eða 1 dl appelsínusafi
1 msk. appelsínubörkur, skorinn í strimla
1/2 tsk. nýmalaður hvítur pipar
sósujafnari
40 g kalt smjör

Hjúpur
3 msk. appelsínumarmelaði
1/2 msk. grænn pipar
1 msk. appelsínubörkur, skorinn í strimla
1 msk. fersk kóríanderblöð, söxuð (má sleppa)
1 msk. Dijonsinnep

 

Aðferð

1. Setjið allt sem tilheyrir bringunni í pott nema sósujafnara og smjör.
2. Sjóðið við vægan hita í 1-1 1/2 klst., eða þar til kjöthitamælir sýnir 71°C.

Hjúpurinn
1. Takið bringuna úr pottinum og setjið í eldfast mót.
2. Blandið öllum hráefnunum í hjúpinn saman, þekið bringuna með honum og bakið í 190°C heitum ofni í u.þ.b. 10 mín.
3. Á meðan bringan er í ofninum er soðið þykkt með sósujafnara og  potturinn síðan tekinn af hellunni.
4. Bætið smjörinu í sósuna og hrærið í með þeytara þangað til smjörið hefur bráðnað. Eftir það má sósan ekki sjóða.
5. Borið fram með blönduðu grænmeti og kartöflugratíni. Réttinn má bera fram kaldan með heitri sósu. Ef hjúpurinn lekur af bringunum er hann settur aftur yfir þær áður en rétturinn er borinn fram.