Engiferkryddað rauðrófusalat

Uppskrift

Fyrir 8-10

Hráefni

  • 3 meðalstórar rauðrófur
  • 2 stk. lime
  • 3 appelsínur
  • 1/2 bolli valhnetukjarnar
  • 2 vorlaukar, saxaðir (má sleppa)
  • 3 tsk. hunang
  • 1/4 bolli olía
  • 1 tsk. rifin engiferrót

Aðferð

1. Sjóðið rauðrófurnar í 40 mín. eða þar til þær eru gegnumsoðnar, kælið þær og flysjið.
2. Skerið rauðrófurnar í mjóa strimla, flysjið eina appelsínu og eitt lime með grænmetisflysjara og skerið börkinn í örfína strimla.
3. Setjið strimlana í sjóðheitt vatn í smástund og sigtið svo vatnið frá.
4. Flysjið afganginn af appelsínunum og skerið frá allan hvíta hlutann af berkinum.
5. Skerið appelsínurnar í báta og geymið safann sem myndast.
6. Leggið rauðrófustrimlana í hring á fat og appelsínubátana í miðjuna.
7. Dreifið valhnetunum, vorlauknum og appelsínustrimlunum yfir salatið.
8. Pressið safann úr lime-ávöxtunum og blandið saman við appelsínusafann, bætið hunanginu og olíunni saman við ásamt engiferrótinni.
9. Hrærið öllu vel saman og dreypið yfir salatið.