Uppskrift
Fyrir 3–4
Hráefni
4 stk. kalkúnasnitsel, u.þ.b. 150 g hvert
4 skinkusneiðar
100 g kastalaostur, skorinn í 4 bita
1 egg
1 dl mjólk
1 dl hveiti
2 dl rasp
salt og pipar eftir smekk
Aðferð
1. Leggið skinkusneiðarnar á kalkúnasnitselið, síðan ostinn á skinkuna og brjótið sneiðarnar saman.
2. Setjið hveitið á disk ásamt kryddi.
3. Þeytið egg og mjólk saman í skál og setjið raspið á annan disk.
4. Veltið kjötinu fyrst upp úr hveiti, síðan eggjablöndunni og síðast raspinu. Gott er að velta því svo aftur upp úr eggjablöndunni og raspi.
5. Pönnusteikið í olíu á meðalheitri pönnu þangað til raspið fær fallegan lit eða í u.þ.b. 1-2 mín. á hvorri hlið.
6. Setjið sneiðarnar síðan í 180°C heitan ofn í u.þ.b. 5 mín.
7. Borið fram með pönnusteiktum kartöflur og blönduðu grænmeti. Rétturinn einn og sér er það góður að sósa er ekki nauðsynleg.
- Prenta
- |
- Senda í pósti
- |
- Deila