Beikon- og pecanhnetufylling

Uppskrift

Hráefni

  • 100 g smjör
  • 2 meðalstórir laukar, smátt saxaðir
  • 1 sellerístöngull, smátt saxaður
  • 16 skorpulausar brauðsneiðar, skornar í teninga
  • 12 beikonsneiðar, steiktar og brytjaðar smátt
  • 1 dós pecanhnetur (um 113 g), grófsaxaðar
  • 3 tsk. kalkúnakrydd frá Pottagöldrum
  • 1 tsk. salt
  • 1/2 tsk. hvítur pipar
  • 2 stór egg, þeytt með gaffli
  • 2 1/2 dl ljóst kjötsoð

Aðferð

1. Bræðið smjörið og mýkið laukinn og selleríið í því.
2. Takið pottinn af hitanum og bætið öllu nema eggjunum og soðinu saman við. Blandið vel saman.
3. Bætið eggjunum og soðinu að lokum út í.