Heslihnetu- og sveppafylling Reykjabúsins

Uppskrift

Hráefni

  • 150 g smjör
  • 350 g nýir sveppir, niðursneiddir
  • 200 g laukur, smátt saxaður
  • 1 stilkur sellerí, smátt saxaður
  • 1/2 búnt fersk steinselja, smátt söxuð (eða 2 msk. þurrkuð)
  • 2-3 msk. salvía
  • 300 g skinka, smátt söxuð
  • 100 g heslihnetur, ristaðar og sneiddar
  • 150 g (u.þ.b. 3 bollar) brauðteningar
  • 2 stór egg
  • 2 dl rjómi
  • 1/2 tsk. salt
  • 1 tsk. ferskmalaður pipar

Aðferð

1. Bræðið smjörið í stórum potti og látið sveppina og grænmetið ásamt steinseljunni, kalkúnakryddinu og skinkunni krauma í því í 10 mín. eða þar til grænmetið er orðið mjúkt.
2. Bætið þá heslihnetum og brauðteningum í pottinn og látið fyllinguna kólna lítillega.
3. Hrærið þá eggjunum og rjómanum saman við og kryddið með salti og pipar.