Algeng spurning
Það er glæsilegt að bera fuglinn fram í heilu lagi. Úlfar Finnbjörnsson sýnir hér góða aðferð við að skera kalkún.
1. Fuglinn heilsteiktur og tilbúinn. Nú þarf að sýna öllum fallega fuglinn áður en hann er skorinn.
2. Skerið haminn í sundur á milli læris og bringu.
3. Skerið lærið frá á milli liða.
4. Endurtakið hinum megin.
5. Skerið þétt upp við bringubeinið og niður að væng.
6. Skerið bringuna frá við væng.
7. Endurtakið hinum megin.
8. Skerið bringur í ½ cm þykkar sneiðar.
9. Skerið læri frá leggjum á milli liða.
10. Skerið kjötið af lærbeinunum.
11. Skerið kjötið af lærunum í sneiðar.
12. Kjötið skorið og klárt til þess að bera fram.
- Prenta
- |
- Senda í pósti
- |
- Deila