Kalkúnar á Íslandi

Kalkúnn hefur smám saman verið að ryðja sér til rúms á veisluborðum Íslendinga. Vinsældir kalkúns eru einna mestar á gamlárskvöld. Sífellt fjölgar þeim sem hafa kalkún í matinn á aðfangadag og jóladag. Um jól og áramót 1994 borðuðu 23% landsmanna kalkún einhvern tíma um hátíðarnar en um síðustu jól var hlutfallið orðið 42%.

Næstum fjórða hver fjölskylda borðaði kalkún á gamlársdag og ellefta hver á aðfangadagskvöld. Kalkúnn skipar því æ mikilvægari sess í hugum landsmanna enda skapar eldamennskan og kjötið einstaklega hátíðlegan blæ.


Ísraelsmenn borða mest

Þótt kalkúnar séu vinsælir í Bandaríkjunum, þá eru það Ísraelar sem borða manna mest af þessum ljúffenga fugli. Þeir setja ofan í sig 12 kg af kalkúnakjöti á mann á hverju ári. Næstir koma Bandaríkjamenn með 8 kg. Þar á eftir koma einhverjir mestu sælkerar á byggðu bóli, nefnilega Frakkar, með rúm 6 kg á mann.

Kalkúnn á mann

Í Bandaríkjunum eru framleiddir 270 milljónir kalkúna á þessu ári, eða einn slíkur á hvert mannsbarn. Þetta er helmings aukning á 25 árum. Neysla Bandaríkjamanna er ekki aðeins um hátíðarnar, sem sést á því að á Þakkargjörðardaginn borða þeir 45 milljón kalkúna, 22 milljón á jólum og 19 milljón á páskum. Þá eru eftir 184 milljónir kalkúna, eða tveir þriðju ársneyslunnar. Kalkúnn hefur vaxið gríðarlega í vinsældum í Bandaríkjunum vegna þess hversu fitulítið kalkúnakjöt er en bragðgott og næringarríkt engu að síður. Að jafnaði hefur kalkúnakjötið aðeins um 2% fitu, en er mjög próteinríkt.

Kalkúnn á tunglinu

Það eru aðeins nokkur ár frá því að kalkúnarækt hófst hér á landi. En áratugum áður höfðu kalkúnar lagt land undir væng, ef svo má að orði komast. Eftir að menn stigu fæti á tunglið í fyrsta skipti var fyrsta máltíð geimfaranna Neils Armstrong og Edwins Aldrin ofnsteiktur kalkúnn með tilheyrandi meðlæti - að vísu úr túpu, en bragðgott engu að síður.

Karlrembufugl

Kalkúnar og hænsni eiga að minnsta kosti eitt sameiginlegt. Hjá hæsnsnum viðgengst sú karlremba að aðeins hanar gala á meðan hænur gagga. Á sama hátt er það aðeins karlyns kalkúnninn sem gefur frá sér þetta sérkennilega korr-hljóð. Kvenkynið lætur sér nægja hljóð sem minna á smelli.

Einkennisfugl Bandaríkjanna

Allir kannast við örninn í bandaríska skjaldarmerkinu. Benjamín Franklín hafði hins vegar stungið upp á því að kalkúni yrði fugl skjaldarmerkisins. Hann taldi kalkúninn standa Bandaríkjamönnum nær en örninn, meðal annars að kalkúnn hefði verið til staðar þegar Evrópumenn námu landið og mettað marga. Honum varð þó ekki að ósk sinni.

Dickens studdi kalkúninn

Fyrr á öldum voru svanir, páfuglar og fleiri slíkir skrautfuglar hafðir á hátíðarborðum í Englandi, ekki síst á jólum. Talið er að "Jólasaga" Charles Dickens (A Christmas Carol) hafi átt mestan þátt í því að gera Englendinga fráhverfa því að borða þessa fallegu fugla og þeirra í stað kom kalkúninn og hefur verið þar síðan.

Sá allra stærsti

Í Heimsmetabók Guiness er skráður þyngsti kalkúnn heims. Hann var 39 kg að þyngd þegar honum var slátrað árið 1989.



Matreiðsla Ljúffengar uppskriftir Fróðleikur  Hafa samband
© Reykjabúið hf. - Holda Kalkúnn 2005 | Reykjum | 270 Mosfellsbæ | Sími: 5 666 800 | Netfang: reykjabuid@kalkunn.is |Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun